| Berglind Ósk 的个人资料Berglingske tidende照片日志列表 | 帮助 |
|
Berglingske tidendeVelkommen på min hjemmeside 9月27日 byrjuð að djamma með skólanum!!Jæja það er ánægjulegt að sjá að það séu einhverjir sem séu að lesa þetta hjá mér og fyrst svo er þá skal ég halda áfram að skrifa eitthvað frá sjálfri mér Það er samt ekkert nýtt búið að vera að gerast hjá mér undanfarið, bara brjálað að gera í skólanum, sem er kannski ekkert skrítið þar sem ég er í svo rosalega mörgum áföngum. Svo eru líka alveg rosalega mikið af verkefnum sem ég þarf að gera á þessari önn, til að byrja með er náttla þetta apóteksverkefni sem ég var að vinna í sumar, nú þarf ég að fara að klára þessa blessuðu ritgerð svo eru nokkur verkefni sem ég nenni ekki einu sinni að skrifa niður þar sem enginn myndi fatta um hvað ég væri að tala um nema kannski eitt verkefnið... ég er að fara að gera ritgerð og halda fyrirlestur um efnafræði bjórs í lyfja- og efnafræði náttúruefna, það getur verið soldið skemmtilegt!! Síðan erum við búin að vera að pússla saman próftöflu og þar sem ég er að taka 3 kúrsa með 3.ári og 3 kúrsa með 4.ári þá varð þetta alveg rosalega erfitt pússluspil og ég kem til með að fá alveg hræðilega próftöflu en það var svo sem eitthvað sem ég mátti alveg búast við, hún var verri en ég náði að fá bekkinn minn til að breyta henni örlítið svo hún yrði aðeins skárri fyrir mig þannig að núna verð ég bara að vera alveg rosalega dugleg að læra svo ég eigi eftir að höndla þessa prófatíð Eins og ég sagði áðan er skólinn alveg kominn á fullt!! Félagslífið þar af leiðandi líka
Jaeja nu aaetla eg ad haetta i bili, tolvan sem eg er a er farin ad rugla eitthvad med lyklabordid heyri bara betur i ykkur naest kvedja Berglind 9月15日 Loksins heyrist eitthvað frá LingnumNú er aldeilis orðið langt síðan ég hef eitthvað látið heyra í mér og bið ég digga lesendur mína afsökunnar á því!! Ég var að pæla í að skrifa um allt sem er búið að vera að gera hjá mér undanfarið en það er bara svo rosalega mikið að ég er að spá í að láta það eiga sig, ætla samt aðeins að stikla á stóru. Ég fór í 3 sumarpróf í sumar og náði þeim með glæsibrag, sérstaklega miðað við að ég eyddi nú ekki öllu sumrinu í að læra heima. Svo er ég að sjálfsögðu búin að vera alveg rosalega dugleg á djamminu eins og venjulega, og kannski extra dugleg núna þar sem maður er orðin laus og liðugur (Já fyrir þá sem eru ekki búnir að frétta það eða fatta nú þegar, að þá erum við Gvensi hætt saman). Ég er ekkert smá að fíla þetta einhleypings líf, bara gera allt sem manni sýnist Svo núna er skólinn byrjaður og það er ekkert smá mikið að gera, ég verð náttla í 150% námi núna á haustönn (23 einingum) svo ég verð að vera alveg hyper dugleg, sérstaklega þar sem ég ætla líka að vinna með þar sem ég á náttla engann pening eftir sumarið (enda náði ég bara að vinna 2 mán) ég verð sem sagt að vinna í Lyfju í Lágmúla og í Skeifunni ef einhvern langar til að kíkja á mig í vinnuna. Svo er ekki alveg komið á hreint hvar ég ætla að búa í vetur, hvort ég ætli að halda áfram að búa hjá mömmu og pabba eða kannski fara eitthvað annað (segji nánar frá því síðar ef eitthvað verður að því) Svo síðast en ekki síst þá er ég byrjuð á fullu í gymminu, komin í rosalegt átak núna og ætla mér að verða alveg rosalega dugleg!! Þannig að eins og þið sjáið þá verður af nógu að taka hjá mér í vetur!! ég vona bara að ég eigi eftir að höndla þetta álag. ég skal samt reyna að halda áfram að vera eins dugleg að blogga eins og síðasta vetur (allavega eftir áramót) En þá langar mig samt til þess að vita hvort það sé einhver að lesa þetta hjá mér, hvort það séu einhverjir sem eru að fylgjast með mér svo ég hvet ykkur eindregið til þess að commenta eitthvað hjá mér!!! þó það væri ekki nema til að láta mig vita hverjir séu að lesa. Vona að ég eigi eftir að sjá comment frá sem flestum!! Kveðja í bili Berglingur P.s. Ef ykkur gengur eitthvað illa að commeta (hafa einhverjir verið að kvarta undan að það sé eitthvað vesen) sendið mér þá allavega e-mail eða látið mig vita á msn bara svo ég geti fylgst með 8月15日 Það vantaði eitthvað síðastÉg var bara að sjá það núna að það sem ég skrifaði í gær virðist ekki hafa komið allt inn. Ég var sem sagt búin að skrifa alveg heilmikið um hvað væri búið að gerast hjá mér undanfarið en það kom ekkert inn nema "það er búið að vera nóg að gera hjá mér". Ég reyndar hef ekki tíma til að laga þetta alveg eins og er þar sem ég á nú að vera að læra fyrir sumarprófin, en ég skal bæta úr því við fyrsta tækifæri, þið verðið því bara að vera forvitin lengur um hvað ég er búin að vera að bralla.
Bið að heilsa í bili og læt heyra í mér fljótlega
Berglind 8月3日 VerslunarmannahelginNú er þessi verslunarmannahelgi liðin, og var alveg rosalega skemmtileg!! Ég sem sagt skellti mér norður eins og ég var búin að segjast ætla að gera. Ég keypti mér bíl á föstudaginn, Nissan Micra '99 árgerð, er alveg eins og nýr!! Ekkert smá frábær, ég kalla hana Perluna mína
Svo á laugardeginum labbaði ég í bæinn með Röggu, Gauta og Ellu Möggu ásamt krökkunum það var svo frábært veður! Sól og blíða
Mér tókst að fá Ragnheiði og Ellu Möggu með mér á djammið sem mér fannst vera mjög góður árangur hjá mér!! Við förum nú ekki oft saman á djammið þannig að það var tími til kominn í þetta skipti!! Það var alveg rosalega gaman eða allavega þangað til það byrjaði smá drama, ég er að spá í að vera ekkert að fara nánar út í hvað það fjallaði um. En við fórum allavega inn á kaffi Akureyri en fórum samt snemma heim sem var kannski eins gott því krakkarnir vöknuðu snemma morguninn eftir og vöktu okkur. Við skelltum okkur svo bara í sund á Þelamörk, sem var alveg rosalega notarlegt!! Síðan skellti ég mér í bæinn að hitta Erlu og Beggu S, við fórum að horfa á skemmtiatriðin, bróðir hennar Erlu var meðal annars að spila, hann er í 10. bekk, í svona bílskúrsbandi sem kallast Mistur eða eitthvað svoleiðis.
Svo um kvöldið var partý heima hjá Erlu, fámennt en góðmennt, sem sagt, ég, Dúlla, Erla, Begga S og Raggi, við reyndar skelltum okkur seinna um kvöldið niður í kjallara þar sem var annað partý áður en við fórum svo í Sjallan á Papana. Þeir voru náttla alveg frábærir að vanda!! Þannig að þetta kvöld var alveg frábært! Svo þegar ég var búin að jafna mig á mánudeginum keyrði ég svo bara suður aftur á yndislega bílnum mínum
Núna eru það svo bara þessi blessuðu sumarpróf sem bíða mín, rosa gaman, ég er ekki alveg að fatta að ég eigi að vera að læra núna, þar sem það er sumar og maður á að vera bara í fríi!! En ég verð víst að láta mig hafa það!
Látum þetta samt gott heita í bili, ég kem svo til með að setja inn myndir frá verslunarmanna helginni fljótlega og svo verð ég líka að setja inn einhverjar myndir af fallegu Perlunni minni!!!!
Bið að heilsa í bili
Berglingur 7月28日 Alltaf sama stuðið hjá mér!!Lífið gengur bara sinn vanagang hérna á Íslandi hjá mér núna, mæta í vinnu klukkan 08.00-16.00 fer heim að reyna að lesa eitthvað fyrir þetta sumarpróf fer kannski út að hitta einhverjar af vinkonum mínum og svo að sofa. Þannig gengur svo bara vikan fyrir sig og tíminn líður alveg skuggalega hratt!!! Það er reyndar búið að vera alveg rosalega gott veður núna undanfarið þótt ótrúlegt sé og ég er meira að segja bara búin að ná pínu lit, ég segji ekki að það sé neitt mikið en eitthvað er það þó
Svo má ég nú ekki gleyma aðalatriðinu, ég fór á föstudagskvöldið á söngleikinn Bítl með Dúllu, þetta var alveg frábær sýning, við Dúlla höfðum báðar alveg rosalega gaman af henni og erum við báðar miklir Bítlaaðdáendur!!! Þeir tóku sem sagt Bítlalögin, mörg af þeim í einhverjum nýjum útgáfum sem voru oftast mjög flottar, og svo inn á milli laganna voru þeir svo bara með grín og glens. Ég sem sagt mæli með að fólk fari að sjá þetta!! Kostar ekki mikið og svo situr maður bara og sötrar bjór og nýtur sýningarinnar alveg í botn.
Svo er það nýjasta hjá mér, ég er að fara að kaupa mér bíl
En nú er þessi blessaði vinnudagur að verða kominn að lokum svo ég þarf að fara að vinna í því að klára verkin mín og koma mér heim.
Bið því bara að heilsa í bili
Berglind 7月22日 "Útilegumyndir"Var að setja inn myndir úr þessari svokölluðu útilegu sem ég var í um síðustu helgi 7月18日 Veðrið elti okkurÞetta var nú alveg merkileg helgi!! Ég sem sagt ákvað á síðustu stundu að skella mér í útilegu með Steinunni og Kötlu Þöll vinkonu hennar. Stefnan var tekin norður þar sem veðurspáin þar lofaði góðu en annars ætluðum við bara að láta ráðast eftir veðri hvert við færum, sem sagt elta veðrið, nema hvað heppnin var aldeilis með okkur og rigningin elti okkur hvert sem við fórum
Við sem sagt lögðum af stað frekar seint á föstudagskvöldið norður á leið, höfðum það bara nice í bílnum nenntum svo ekki að keyra lengra en í Varmahlíð þann daginn þar sem klukkan var svo margt, þar tjölduðum við og fórum bara beint í háttinn. Svo morguninn eftir héldum við svo áfram til Akureyrar, þar sem við fórum í göngutúr í Kjarnaskógi og svo í sund. Það var soldið skrítið samt að koma til Akureyrar svona, þá meina ég bara svona renna í gegn svona í afslöppun og gera ekkert af hlutunum sem maður er vanur að gera þegar maður kemur. Frá Akureyri lá svo leiðin í Ýdali, þar sem foreldrar Kötlu voru í sextugs afmæli, þar ætluðum við bara að tjalda á tjaldsvæðinu og hafa það notarlegt með gítar og söng en þegar þangað var komið var alveg hellirigning, við ákváðum samt að grilla og sjá síðan til með framhaldið. Okkur var svo boðið að koma að kíkja á þetta sextugsafmæli og við þáðum það þar sem við vorum orðnar frekar blautar. Þar lentum við svo í rosalega fínum veitingum og alls kyns skemmtiatriðum og var alveg rosalega fínt, svo var okkur boðið að gista á Húsavík hjá syni afmælisbarnsins sem við gerðum eða nema þá reyndar Steinunn sem tjaldaði ein fyrir utan Ýdali þegar hætti að rigna þar sem hún vildi endilega fara aðeins fyrr að sofa en við hinar og það þýddi ekkert að fá hana ofan af því!!! Erla kom þarna einmitt með okkur þar sem hún er að vinna á tjaldstæði í Mývatnssveit og langaði að koma að hitta mig þar sem það var svo stutt á milli, sem var alveg æðislegt þar sem ég hef ekki séð hana lengi. Þannig rættist sem sagt úr þessari útilegu hjá mér um helgina, og þetta var alveg rosalega gaman.
Nú þarf ég að fara að klára vinnudaginn hérna á spítalanum og koma mér heim, þannig að ég verð bara að skrifa meira seinna
Bless í bili
Berglind 7月9日 Nýjar myndirEins og glöggir taka eftir þá er ég búin að setja 3 ný albúm inn á myndasíðuna mína, svona þar sem ég var að kaupa þessa fínu digital myndavél, hér ætla ég að gefa pínu útskýringar á þessum myndum: Islands brygge: Ég fór að grilla á Islands brygge daginn sem síðasta prófið var búið hjá mér, ég var það með hressu fólki (Steinunn, Hákon, Klara, Sandra, Gunni og Gummi) og eins og má sjá á myndunum þá var þetta alveg rosalega kósí hjá okkur!!! DFU - próf og fleira: Í þessu albúmi eru meðal annars myndir af því þegar ég var að læra fyrir próf á CBS með Hákoni og Klöru ( þetta er s.s. daginn sem ég fékk myndavélina og ég varð að sjálfsögðu að prófa!!) Svo eru líka myndir af krökkunum í skólanum strax eftir að síðasta prófið var búið (Lægemiddelkemi). Øresundskolligiet: þetta eru bara svona ýmsar myndir af kollogienu og umhverfinu í kring ásamt nokkrum myndum úr íbúðinni minni. Ég ákvað að setja þetta inn þar sem Dúlla kvartaði einu sinni við mig að ég væri bara með myndir af djamminu en engar af heimili mínu og einhverju svoleiðis, þetta kemur kannski svolítið seint þar sem ég er nú flutt heim og allt það en ég ákvað samt að setja það inn og leyfa ykkur að sjá hvernig þetta er búið að vera, allavega ykkur sem sáu það ekki sjálf. Svo er ég líka búin að taka myndir af ættarmótinu, set trúlega eitthvað af þeim myndum inn líka en það verður bara að koma seinna, má ekki drekkja ykkur í of mikið af myndum í einu!!! Nú er ég hins vegar að spá í að fara að skella mér eitthvað út, ekkert gaman að hanga heima hjá sér á laugardagskvöldi þegar er nóg að gera!!! bless í bili Berglind
|
|||||
|
|